Enn þéttum við raðirnar!
Karlakór Reykjavíkur rís senn úr sumardvala og þá er lag að bæta í hópinn.
Kórstjóri prófar raddsvið og tónheyrn umsækjenda og það er kostur en ekki skilyrði að lesa nótur.
Nánari upplýsingar um kórstarfið má finna á vef kórsins
www.kkor.is og á FB síðu okkar
https://www.facebook.com/karlakorreykjavikur
Við hvetjum áhugasama söngmenn sem vilja taka þátt í metnaðarfullum kórsöng að senda okkur línu á kor@kkor.is með helstu upplýsingum og símanúmeri, og við höfum samband um hæl.
Stjórn Karlakórs Reykjavíkur.