Saga kórsins
Karlakór Reykjavíkur var stofnađur 3. janúar 1926. Ađalhvatamađur ađ stofnun hans var Sigurđur Ţórđarson tónskáld, sem stjórnađi kórnum samfellt, ađ einu ári undanskildu, til ársins 1962.
Strax áriđ 1931 hóf kórinn ađ fara í söngferđir. Fyrst innanlands en áriđ 1935 fór kórinn í söngferđ til Norđurlanda. Sungiđ var í Bergen, Osló, Stokkhólmi, Gautaborg og Kaupmannahöfn. Einsöngvari í ţessari för var Stefán Íslandi og undirleikari Emil Thoroddsen.
Ţessi fyrsta ţolraun kórsins á erlendri grund ţótti takast svo vel ađ upp frá ţví var kórinn eftirsóttur til hljómleikahalds bćđi austan hafs og vestan. Má sem dćmi nefna ađra ferđ til Evrópu áriđ 1937 og áćtlađa umfangsmikla söngferđ til Ameríku 1939. Búiđ var ađ ganga frá öllum ţáttum ţeirrar ferđar en vegna seinni heimsstyrjaldarinnar var henni slegiđ á frest. Hún var farin strax ađ styrjöldinni lokinni áriđ 1946. Í ţeirri ferđ voru sungnir 56 konsertar og í annarri Ameríkuferđ áriđ 1960 voru sungnir 39 konsertar. Auk ţess hefur kórinn fariđ í söngferđir til Miđjarđarhafslanda og margar söngferđir til Evrópu og Ameríku. Í ţessum söngferđum hefur kórinn ávallt lagt áherslu á ađ kynna íslenska tónlist.
Karlakór Reykjavíkur heimsótti Kína áriđ 1979 fyrstur allra kóra frá vesturlöndum eftir Menningarbyltinguna. Síđast fór kórinn til Austurríkis og Ţýskalands, ţar sem hann hélt m.a. tónleika í Graz , heimabć Páls Pampichlers Pálssonar fyrverandi stjórnanda kórsins. Páll var viđstaddur ţessa tónleika og stjórnađi ţar einu lagi. Utanlandsferđir kórsins eru orđnar 20 talsins.
Ótaldar eru fjölmargar söngferđir innanlands svo og árlegir vortónleikar og jólatónleikar fyrir styrktarfélaga sem nú eru hátt í tvö ţúsund. Allir fremstu einsöngvarar Íslands bćđi fyrr og síđar hafa sungiđ međ Karlakór Reykjavíkur á tónleikum heima og erlendis.
Áriđ 1962 festi kórinn kaup á húsnćđi fyrir starfsemi sína ađ Freyjugötu 14. Félagsheimiliđ var vígt 29. febrúar 1964. Áriđ 1998 rćttist sá langţráđi draumur ađ kórinn kćmist í nýtt og betra húsnćđi sem auk félagsheimilis vćri sérhannađur tónleikasalur. Kórinn flutti alla sína starfsemi í nýtt og glćsilegt hús ađ Skógarhlíđ 20 ţann 1. september 1998. Félagsheimiliđ hlaut nafniđ Ýmir og er hiđ glćsilegasta á allan hátt. Ýmir reyndist kórnum dýr auk ţess sem húsnćđiđ hentađi ekki starfsemi kórsins.Ýmir var ţví seldur í mars mánuđi 2006 og keypt var hćđ ađ Grensásvegi 13, ţar sem félagsheimili kórsins er í dag.
Ţađ hefur veriđ gćfa Karlakórs Reykjavíkur ađ hafa ávallt á ađ skipa frábćrum söngstjórum. Stjórnendur kórsins í gegnum tíđina hafa veriđ Sigurđur Ţórđarson, ţá Páll Ísólfsson, Jón S. Jónsson, Páll Pampichler Pálsson og Catherine Willams. Núverandi söngstjóri er Friđrik S. Kristinsson.