Karlakór Reykjavíkur

Stjórn

Félagar

1. tenór

2. tenór

1. bassi

2. bassi

Stjórnandi

Styrktarfélagar

Saga kórsins

Útgáfa

Diskar

Hraustir menn

English







Karlakór Reykjavíkur í Langholtskirkju vorið 2009.

NÝTT ÁR MEÐ NÝJUM VERKEFNUN

Starf Karlakórs Reykjavíkur er komið í fullan gang á nýju ári. Félagar hittast tvisvar í viku, tvo tíma í senn og búa sig undir komandi verkefni. Helstu viðburðir á dagskránni eru tónleikar með Karlakórnum Heimi sem fara fram á Akureyri og í Varmahlíð laugardaginn 6. mars og í Langholtskirkju viku síðar. Þá verða vortónleikar kórsins haldnir í Langholtskirkju dagana 25. 27. og 28. apríl og 1. maí. Nánari upplýsingar munu birtast um þessa atburði hér á vefsíðunni þegar nær dregur.


SÖNGUR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI

Karlakór Reykjavíkur kemur fram við ýmis tækifæri, ýmist fullskipaður eða í smærri einingum. Þessi tækifæri geta verið árshátíðir fyrirtækja, brúkaup, afmælisveislur eða móttökur að öðru tilefni. Þá hefur það færst í vöxt að leita til kórsins með söng í jarðarförum. Þú getur sent tölvupóst á kor@kkor.is eða hringt í 551-4885 til að afla nánari upplýsinga um þetta.


GERÐHAMRAR – GLÆSILEGUR VEISLUSALUR TIL LEIGU

Gerðhamrar, félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur var opnað formlega í upphafi árs 2008. Það er staðsett á efstu hæð hússins nr. 13 við Grensásveg (Pfaff húsið). Í félagsheimilinu er glæsilegur salur sem hentar vel til funda– og veisluhalda. Vinsamlegast sendið tölvupóst á kor@kkor.is eða hringið í síma 551-4885 ef frekari upplýsinga er óskað um salarleigu.

© Karlakór Reykjavíkur




© Karlakór Reykjavíkur